Sköpun er einn af grunnþáttum menntunar samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla og hefur lengi verið talin mikilvæg fyrir tjáningu, sjálfsmynd, forvitni og nám barna. Þrátt fyrir það liggja takmarkaðar upplýsingar fyrir um hvernig skapandi starf, myndsköpun og sjónlistir birtast í daglegu starfi leikskóla.

Um rannsóknina

Markmið rannsóknarinnar Leikskólinn – sköpun og sjónlistir er að varpa ljósi á stöðu skapandi starfs, myndsköpunar og sjónlista í leikskólum út frá reynslu og sjónarmiðum deildarstjóra og annars starfsfólks. Jafnframt er ætlunin að efla þekkingu á sköpun í leikskólum, styrkja faglega umræðu um hlutverk hennar í menntun leikskólabarna og varpa ljósi á hvernig skapandi viðfangsefni geta stutt við vellíðan, tjáningu og nám barna.

Rannsóknin skiptist í tvo hluta. Fyrst verður framkvæmd landskönnun meðal deildarstjóra leikskóladeilda um viðhorf þeirra til skapandi starfs. Í framhaldi af henni verða gerðar vettvangsrannsóknir í nokkrum leikskólum sem hafa vakið athygli fyrir áhugavert skapandi starf.

Af hverju skiptir rannsóknin máli?

Þrátt fyrir að sköpun sé einn af grunnþáttum menntunar hafa fáar rannsóknir beinst sérstaklega að því hvernig sjónlistir og sérstaklega myndsköpun birtast í daglegu starfi leikskóla.

Með rannsókninni er ætlunin að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um stöðu sköpunar í leikskólum og draga fram dæmi um áhugaverða starfshætti. Jafnframt mun rannsóknin leggja grunn að alþjóðlegum samanburði í samstarfi við rannsakendur í Króatíu og Slóveníu.

Spurningar

Ekki er spurt um upplýsingar sem hægt er að rekja beint til einstakra leikskóla eða starfsfólks. Ekki er spurt spurninga sem tengjast einstaka börnum. Það tekur 10-12 mínútur að svara könnuninni.

Þátttakendur

Könnunin er fyrir alla deildarstjóra á leikskóladeildum. Hún var send leikskólastjórum og þeir beðnir um að miðla henni áfram til deildarstjóra. Deildarstjórar sem ekki hafa þegar svarað geta smellt á hnappinn þar sem stendur spurningakönnun.

Rannsóknin er styrkt af Rannsóknarsjóði Háskólans á Akureyri

Rannsakendur

Anna Elísa Hreiðarsdóttir (annaelisa@unak.is) er lektor við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknir hennar og þróunarverkefni snúa meðal annars að foreldrasamstarfi, jafnrétti, starfi með elstu börnum leikskólans og tölvum og tækni í leikskólastarfi þar sem skapandi starf og leikur er í fyrirrúmi. Sjá ….

Kristín Dýrfjörð (dyr@unak.is) er dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknir hennar snúa að hæglæti, áhrifum, vinnuaðstæðum og skapandi starfi í leikskólum ásamt áhrifum stefnumótunar og hugmyndafræði s.s. nýfrjálshyggju á leikskólastarf. Sjá …


Fréttir af rannsókninni

  • Vefur opnaður.
  • Könnun opnuð 8. júní 2026.
  • 8. júní könnun framsend til leikskólastjóra -( Mismunandi hvort sveitarfélög eða rannsakendur senda könnun til leikskólastjóra).
  • Könnun send til sveitarfélaga og beðið um leyfi.

Scroll to Top